Skilmálar
Á.Jónsson ehf/Tantra.is
Almennt
Tantra áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti Kt: 701296-6139 og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Tantra ber samkvæmt þessu ekki ábyrgð á því tjóni sem dreifingaraðili, t.d Pósturinn, kann að valda á vörunni.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Sýna þarf fram á að varan sé keypt af www.tantra.is en ekki annar staðar. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Tantra með spurningar.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Sendingar koma í ómerktum pökkum og engin hætta á að vita hvað sé verið að kaupa.
Ábyrgð
2 ára ábyrgð er vegna framleiðslugalla á endurhlaðanlegum vörum gegn framvísun kvittunar og nær hún yfir galla eins og t.d sambandsleysis við mótor eða takka vörunar.
Ath: ábyrgðin nær ekki yfir útlits, rafhlöðu, högg eða rakaskemmda og einnig ef notuð eru röng efni með tækjum sem þola ekki olíur og/eða silicone sleipiefni.
Ágreiningsmál
Ef upp kemur ágreiningur getur neytandinn skotið ágreiningsmáli sínu til kærunefndar vöru og þjónustukaupa borgartúni 29, 105 rvk. Vefslóð nefndarinnar er www.kvth.is